Prentað þann 7. apríl 2025
667/2011
Reglugerð um almennar undanþágur frá frelsi þjónustuveitenda á EES-svæðinu til að veita þjónustu á Íslandi án staðfestu.
1. gr.
Ákvæði 13. gr. laga um þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins gildir ekki um:
- Þjónustu í almannaþágu sem hefur almenna efnahagslega þýðingu,
- málefni er falla undir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 96/71/EB frá 16. desember 1996 um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- málefni er falla undir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- málefni er falla undir tilskipun ráðsins nr. 77/249/EBE frá 22. mars 1977 um að auðvelda lögmönnum að neyta réttar til að veita þjónustu, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- starfsemi vegna innheimtu skulda fyrir dómi,
- málefni sem II. bálkur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2005/36/EB frá 7. september 2005 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi tekur til, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- kröfur um að starfsemi sé bundin við tilteknar starfsgreinar,
- málefni er falla undir reglugerð ráðsins nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- stjórnsýsluleg formsatriði varðandi frjálsa för fólks og búsetu þess er ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38/EB frá 29. apríl 2004 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsra flutninga og búsetu á yfirráðasvæði aðildarríkjanna taka til, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- kröfur sem lúta að því að einstaklingar sem eru ríkisborgarar landa utan Evrópska efnahagssvæðisins þurfi að hafa vegabréfsáritun eða dvalarleyfi eða þurfi að tilkynna sig til íslenskra stjórnvalda, í samræmi við Schengen-samkomulagið,
- málefni er falla undir reglugerð ráðsins nr. 259/93 frá 1. febrúar 1993 um umsjón og eftirlit með flutningi úrgangs innan, til og út úr Evrópubandalaginu, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- höfundarétt, skyld réttindi sem og málefni er falla undir tilskipun ráðsins nr. 87/54/EBE frá 16. desember 1986 um vernd svæðislýsinga smárása í hálfleiðurum, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt, og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 96/9/EBE frá 11. mars 1996 um lögverndun gagnagrunna, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt, svo og um eignarrétt á sviði iðnaðar,
- verk þar sem lög gera kröfu um aðkomu lögbókenda,
- málefni er falla undir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2006/48 frá 17. maí 2006 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikninga, líkt og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt,
- skráningu ökutækja sem tekin eru á leigu í öðru EES-ríki,
- ákvæði varðandi samningsbundnar skuldbindingar og skuldbindingar sem ekki eru samningsbundnar, þ.m.t. form samninga, sem ákvarðast samkvæmt reglum um alþjóðlegan einkamálarétt.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. mgr. 13. gr. laga nr. 76/2011 um þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins og öðlast þegar gildi.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 4. júlí 2011.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Kjartan Gunnarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.