1. gr.
Gildissvið - Val á byggðarlögum.
Á fiskveiðiárunum 2014/2015 til og með 2017/2018 hefur Byggðastofnun til ráðstöfunar aflaheimildir, sem ráðherra ákvarðar samkvæmt heimild í 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi sbr. ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
Val á byggðarlögum sem koma til álita skal byggja á eftirfarandi þáttum:
Byggðarlag sé í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Íbúar byggðarlags séu færri en 400.
Íbúum hafi fækkað sl. 10 ár.
Akstursfjarlægð frá byggðakjarna sem telur meira en 1.000 íbúa sé a.m.k. 20 km.
Byggðakjarninn tilheyri vinnusóknarsvæði sem telur færri en 10.000 íbúa.
Hlutfall starfa við veiðar og vinnslu í sjávarbyggðinni sé a.m.k. 20% allra starfa.
Að aflamark Byggðastofnunar skipti verulegu máli fyrir framtíð byggðarlagsins að mati stjórnar Byggðastofnunar.
Stjórn Byggðastofnunar tekur ákvörðun um endanlegt val byggðarlaga á grundvelli greiningar Byggðastofnunar á stöðu byggðarlaga og innkominna umsókna um samstarf.
2. gr.
Skipting aflamarks.
Skipting þess aflamarks sem kemur í hlut byggðarlags samkvæmt reglum þessum skal fara fram á grundvelli samninga Byggðastofnunar, fiskvinnslu og útgerðaraðila. Við mat umsókna frá einstökum byggðarlögum verður byggt á mati á eftirfarandi atriðum:
Trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi.
Fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur sem skapast eða verður viðhaldið.
Sem bestri nýtingu þeirra aflaheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
Öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
Jákvæðum áhrifum á atvinnulíf og samfélag.
Traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjenda.
Byggðastofnun ákveður samningstíma samninga um nýtingu aflaheimilda skv. reglum þessum, sem skal þó ekki vera lengri en til 31. ágúst 2018.
3. gr.
Skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.
Eingöngu er heimilt að ráðstafa aflamarki til fiskiskipa sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, þegar úthlutun aflamarks á sér stað.
4. gr.
Umsóknarferli.
Byggðastofnun annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, og skal auglýsa eftir umsóknum í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Byggðastofnunar: www.byggðastofnun.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Byggðastofnun ákveður og skal umsóknum skilað á því formi sem stofnunin ákveður. Umsóknarfrestur skal vera að lágmarki tvær vikur. Byggðastofnun annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.
5. gr.
Úthlutun aflamarks.
Byggðastofnun skal úthluta aflamarki með tilkynningu til Fiskistofu um magn á skip, á grundvelli samninga fyrir fiskveiðiárið og er heimilt að úthluta í allt að fimm áföngum, 1/5 hverju sinni, enda séu skilyrði samningsins uppfyllt. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok fiskveiðiárs fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er heimilt að ráðstafa áunnu aflamarki yfirstandandi fiskveiðiárs til næsta fiskveiðiárs, enda hafi viðkomandi skip verið í samfelldri eigu viðkomandi útgerðar og ekki verið flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan.
6. gr.
Samráð við sveitarstjórn.
Byggðastofnun skal hafa samráð við sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags áður en samningur er undirritaður.
7. gr.
Vinnsla afla.
Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til aflamarks Byggðastofnunar til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á viðkomandi fiskveiðiári og í samræmi við samning sem liggur til grundvallar úthlutun. Með vinnslu er átt við flökun, flatningu, frystingu, söltun eða herslu samkvæmt nánari lýsingu í samningi.
8. gr.
Framsal aflamarks.
Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglum þessum er óheimilt, en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Aflamarki Byggðastofnunar er m.a. ætlað að stuðla að sem bestri nýtingu þeirra aflaheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu. Því er heimilt í samningi skv. 2. gr. að kveða á um bann við leigu eða sölu aflaheimilda frá aðilum samningsins á samningstímanum.
9. gr.
Eftirlit með samningum.
Eftirlit með framkvæmd þessara reglna skal vera í höndum Byggðastofnunar í samráði við viðkomandi sveitarstjórn og atvinnuþróunarfélag. Sé það mat þessara aðila að um alvarleg frávik sé að ræða frá ákvæðum samningsins, getur Byggðastofnun rift honum einhliða hvenær sem er á samningstímanum.
10. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæði til bráðabirgða XIII við lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. september 2014. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 840/2013, um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda skv. ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson.