Prentað þann 9. apríl 2025
644/2013
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 421/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 er varðar visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.
1. gr.
Við 1. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í 37. tölul. IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2013, frá 3. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 frá 11. júlí 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.
2. gr.
Við 2. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28/2013, 16. maí 2013, bls. 294.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku ásamt síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júní 2013.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Ólafur Egill Jónsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.