Prentað þann 7. apríl 2025
638/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Gíneu-Bissá, nr. 567/2014.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:
1. | Ákvörðun ráðsins 2012/285/SSUÖ frá 31. maí 2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá og um niðurfellingu ákvörðunar 2012/237/SSUÖ, sbr. fylgiskjal 1. | |
1.1 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/516/SSUÖ frá 24. september 2012 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2. | |
1.2 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/293/SSUÖ frá 18. júní 2013 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 3. | |
1.3 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/415 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 1.3. | |
1.4 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/36 frá 10. janúar 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 1.4. | |
2. | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 377/2012 frá 3. maí 2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 4. | |
2.1 | Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 458/2012 frá 31. maí 2012 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 5. | |
2.2 | Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 559/2013 frá 18. júní 2013 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 6. | |
2.3 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/403 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2.3 | |
2.4 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/31 frá 10. janúar 2018 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2.4. |
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
2. gr. Fylgiskjöl.
Fylgiskjöl 1.3-1.4 og 2.3-2.4 eru birt með reglugerð þessari.
3. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.