1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Tilskipun ráðsins 96/93/EB frá 17. desember 1996 um vottun dýra og dýraafurða. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 39, 15. júlí 2010, bls. 1.
2. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um þvingunarúrræði og brot gegn reglugerð þessari er varða viðurlögum fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a-30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim eða ákvæðum laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir.
3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun annast eftirlit samkvæmt reglugerð þessari.
4. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 17. gr. a laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og 31. gr. laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir.
5. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka efnisákvæði þessarar reglugerðar ekki til kjöts, mjólkur, eggja og hrárra afurða úr þessum matvælategundum fyrr en 1. nóvember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 19. júlí 2010.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.