Prentað þann 15. apríl 2025
571/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 602/2008 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/139 frá 29. janúar 2018 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95/2018 frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018, bls. 222.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. f og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.