Prentað þann 15. apríl 2025
Breytingareglugerð
538/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1127/2014 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/386 frá 6. mars 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1207/2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 202 frá 27. október 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 16. nóvember 2017, bls. 149.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. maí 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.