Prentað þann 29. apríl 2025
Breytingareglugerð
537/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 438/2012 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, c, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2159 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar tilteknar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67 frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðinda Evrópusambandsins nr. 25 frá 19. apríl 2018, bls. 306.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. maí 2018.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.