Prentað þann 14. apríl 2025
527/2018
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (VI).
1. gr. Gildissvið.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.
2. gr. Innleiðing reglugerðar.
Eftirfarandi reglugerð Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á áfengum drykkjum skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/175 frá 2. febrúar 2018 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 33/2018, 17. maí 2018, bls. 220), um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2018, frá 27. apríl 2018, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. maí 2018.
F. h. r.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.