Prentað þann 14. apríl 2025
503/2017
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (VII).
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:
-
Tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/765 frá 11. mars 2016 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 10/2017, 16. febrúar 2017, bls. 224), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2016, frá 2. desember 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
-
Heimild um hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2016 á tilteknum vínræktarsvæðum:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2147 frá 7. desember 2016 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 31/2017, 18. maí 2017, bls. 771), um að heimila hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2016 í tilteknum vínræktarhéruðum í Þýskalandi og á öllum vínræktarhéruðum í Ungverjalandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2017, frá 5. maí 2017, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. maí 2017.
F. h. r.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.