Prentað þann 7. apríl 2025
503/2016
Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 283/2015 í réttri númeraröð:
1.4 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/119 frá 28. janúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 1.4. | |
2.4 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/111 frá 28. janúar 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 2.4. |
Ákvæði 2. mgr. 2. gr. hljóði svo:
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.
Lilja Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.