Prentað þann 8. apríl 2025
501/2020
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landamæraeftirlitsstöð (varðandi matvæli, fóður o.fl.).
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2020, frá 7. febrúar 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 frá 10. október 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og við hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landamæraeftirlitsstöð. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 23. apríl 2020, bls. 952.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi en ákvæði 3. mgr. 2. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 taka gildi frá og með 13. desember 2023.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.