Prentað þann 8. apríl 2025
479/2022
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um slysatryggingu við heimilisstörf nr. 550/2017.
1. gr.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Sá sem fyllir út viðeigandi reit á skattframtali í byrjun árs telst slysatryggður við heimilisstörf í samræmi við álagningartímabil 9. mgr. 112. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum, enda hafi skattframtalinu verið skilað til skattyfirvalda innan lögbundins frests.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 8. gr. og 23. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 5. apríl 2022.
Willum Þór Þórsson.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.