Prentað þann 9. apríl 2025
479/2019
Reglugerð um breyting á reglugerð um skipan og störf starfsgreinaráða, nr. 711/2009.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 5. gr. reglugerðarinnar:
Í stað orðanna "einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og tveir tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga" í 9. mgr. kemur: tveir tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands og tveir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 2. maí 2019.
Lilja D. Alfreðsdóttir.
Ásta Magnúsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.