Á eftir 2. gr. k bætist við ný grein, 2. gr. l, sem orðast svo:
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2000 frá 22. desember 2000 skal eftirtalin EB-gerð öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2658/2000 frá 29. nóvember 2000 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart flokkum samninga um sérhæfingu.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 48. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, öðlast þegar gildi.
Við birtingu reglugerðar þessarar er felldur úr gildi f-liður 2. gr. reglugerðar nr. 594/1993 varðandi upptöku reglugerðar nr. 417/85/EBE í íslenskan rétt, sbr. efnislega breytingu á EBE-gerðinni með b-lið 2. gr. reglugerðar nr. 375/1994 og framlengingu á henni með reglugerð nr. 755/1997, sbr. 2. tölul. inngangsákvæða EB-gerðarinnar.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem fela í sér breytingu á 6. lið XIV. viðauka við EES-samninginn og snerta beitingu 3. mgr. 53. gr. samningsins, eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB (ákvörðunin í tölublaði nr. 9/2001, bls. 5-6). EB-gerðin er jafnframt birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.