Prentað þann 15. apríl 2025
475/2018
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (VIII).
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:
-
Umbúðamerkingar á vínum:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1353 frá 19. maí 2017 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 7/2018, 1. febrúar 2018, bls. 556), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 607/2009 að því er varðar vínþrúguyrki og samheiti þeirra sem mega koma fram á merkimiðum á vínum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 251/2017, frá 15. desember 2017, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
-
Tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1961 frá 2. ágúst 2017 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 14/2018, 8. mars 2018, bls. 365), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2018, frá 9. febrúar 2018, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 26. apríl 2018.
F. h. r.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.