Prentað þann 7. apríl 2025
454/2016
Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 426/1999, um vinnu barna og ungmenna.
1. gr.
Viðauki 2 við reglugerðina verður svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:
Listi yfir efni sem ungmenni undir 18 ára aldri mega ekki vinna með.
Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða.
-
Efni og efnablöndur sem uppfylla viðmið fyrir flokkun samkvæmt reglugerð (EB) nr. 1272/2008, sbr. a-lið 1. gr. reglugerðar nr. 415/2014, um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna, í einn eða fleiri eftirfarandi hættuflokka og hættuundirflokka með einni eða fleiri hættumerkingum:
- Bráð eituráhrif, 1., 2. eða 3. flokkur (H300, H310, H330, H301, H311, H331).
- Húðæting, flokkar 1A, 1B og 1C (H314).
- Eldfim lofttegund, 1. eða 2. flokkur (H220, H221).
- Úðabrúsar með eldfimum efnum, 1. flokkur (H222).
- Eldfimur vökvi, 1. eða 2. flokkur (H224, H225).
- Sprengifim efni, flokkar "Óstöðugt sprengifimt efni" eða sprengifim efni í deiliflokkum 1.1, 1.2, 1.3, 1.4 og 1.5 (H200, H201, H202, H203, H204, H205).
- Sjálfhvarfgjörn efni og efnablöndur, tegund A, B, C eða D (H240, H241, H242).
- Lífræn peroxíð, tegund A eða B (H240, H241).
- Sértæk eituráhrif á marklíffæri eftir váhrif í eitt skipti, 1. eða 2. flokkur (H370, H371).
- Sértæk eituráhrif á marklíffæri eftir endurtekin váhrif, 1. eða 2. flokkur (H372, H373).
- Næming öndunarfæra, 1. flokkur, flokkar 1A eða 1B (H334).
- Húðnæming, 1. flokkur, flokkur 1A eða 1B (H317).
- Krabbameinsvaldandi áhrif, flokkur 1A, 1B eða 2. flokkur (H350, H350i, H351).
- Stökkbreytandi áhrif á kímfrumur, flokkur 1A, 1B eða 2. flokkur (H340, H341).
- Eiturhrif á æxlun, flokkur 1A eða 1B (H360, H360F, H360FD, H360Fd, H360D, H360Df).
- Líffræðilegir skaðvaldar í 3. og 4. áhættuhópi skv. c-d-liðum 2. mgr. 3. gr. reglna nr. 764/2001, um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum líffræðilegra skaðvalda á vinnustöðum.
- Efni og efnablöndur sem geta valdið stökkbreytingu, sbr. b-lið 3. gr. reglna nr. 98/2002, um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna sem geta valdið krabbameini eða stökkbreytingu á vinnustöðum.
- Efni sem í reglugerð nr. 390/2009, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum, flokkast sem krabbameinsvaldandi.
2. gr.
Við viðauka 3 bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Vinnsluferli sem geta valdið krabbameini skv. I. viðauka reglna nr. 98/2002, um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna sem geta valdið krabbameini eða stökkbreytingu á vinnustöðum.
3. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og er sett samkvæmt heimild í 38. gr., 3. mgr. 51. gr. og 63. gr. f laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins og þess ráðherra sem fer með málefni efna og efnavara, í samræmi við hlutverk Vinnueftirlits ríkisins samkvæmt 7. gr. efnalaga nr. 61/2013, til innleiðingar á tilskipun 2014/27/ESB um breytingu á tilskipun ráðsins 92/58/EBE, 92/85/EBE, 94/33/EB og 98/24/EB og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/37/EB í því skyni að laga þær að reglugerð (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og efnablandna sem vísað er til í XVIII. viðauka samnings um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 239/2014.
Velferðarráðuneytinu, 26. maí 2016.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.