Reglugerð
um breytingu á reglugerð nr. 261/1995 um undanþágur
frá lögheimilisskilyrði sjúkratrygginga.
1.gr.
Við 2. gr. bætist nýr liður sem verði f liður og orðist svo:
f) Þegar um er að ræða einstakling sem íslenska ríkisstjórnin hefur veitt hæli sem flóttamanni.
2.gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 4. mgr. 32. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 28. ágúst 1996.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Ragnheiður Haraldsdóttir.