Prentað þann 7. apríl 2025
441/2011
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 662/2010 (að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 19 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) nr. 1).
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011, frá 1. apríl 2011, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 662/2010 frá 23. júlí 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 19 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) nr. 1.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 662/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 22/2011, 14. apríl 2011, bls. 28.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2011 er birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 437/2011 í B-deild Stjórnartíðinda (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2010).
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 19. apríl 2011.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Þóra M. Hjaltested.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.