405/2014
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 397/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem eru tilgreind í II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 25/2013 frá 16. janúar 2013 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og á viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar aukefnið kalíumdíasetat. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 252.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 497/2013 frá 29. maí 2013 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem eru tilgreind í II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 222/2013, frá 14. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4, frá 23. janúar 2014, bls. 236.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 724/2013 frá 26. júlí 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar varðandi nokkur fjölalkóhól (pólýól). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2014, frá 15. febrúar 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, frá 27. febrúar 2014, bls. 121.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 739/2013 frá 30. júlí 2013 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á plöntusterólum, sem eru auðug af stigmasteróli, sem bindiefni í áfeng hanastél, sem eru tilbúin til frystingar, og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar á plöntusterólum, sem eru auðug af stigmasteróli, sem matvælaaukefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2014, frá 15. febrúar 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, frá 27. febrúar 2014, bls. 113.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 816/2013 frá 28. ágúst 2013 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á hlutlausri metakrýlatsamfjölliðu og mínushlaðinni metakrýlatsamfjölliðu í fæðubótarefni í föstu formi og á viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar fyrir basíska metakrýlatsamfjölliðu (E 1205), hlutlausa metakrýlatsamfjölliðu og mínushlaðna metakrýlatsamfjölliðu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2014, frá 15. febrúar 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, frá 27. febrúar 2014, bls. 107.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 817/2013 frá 28. ágúst 2013 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar arabískt gúmmí sem er umbreytt með oktenýlrafsýru. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38/2014, frá 9. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 10. apríl 2014, bls. 175.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2014.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Halldór Runólfsson.
|
Eggert Ólafsson.