1. gr.
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2007/49/EB, sem vísað er til í III. kafla I. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2007, frá 9. desember 2007, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, I. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Í stað 9. viðauka reglugerðar nr. 301/1995 komi viðauki þessarar reglugerðar.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. apríl 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)