Prentað þann 7. apríl 2025
384/2015
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 um skilyrði fyrir rafrænni vinnslu yfirlýsingar um nothæfi byggingarvara.
1. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
Eftirtalin reglugerð sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 frá 30. október 2013 um skilyrði fyrir því að gera yfirlýsingu um nothæfi byggingarvara tiltæka á vefsetri, sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2015, frá 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 887.
2. gr. Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 frá 30. október 2013 um skilyrði fyrir því að gera yfirlýsingu um nothæfi byggingarvara tiltæka á vefsetri.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tölul. 7. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. apríl 2015.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.