Prentað þann 7. apríl 2025
Breytingareglugerð
376/2015
Reglugerð um breyting á reglugerð um skipan og störf starfsgreinaráða nr. 711/2009.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:
- Í stað orðanna "einn tilnefndur af félags- og tryggingamálaráðuneyti, einn tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti" í 2. mgr. kemur: tveir tilnefndir af velferðarráðuneyti.
- Í stað orðanna "þrír tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands og þrír tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins" í 4. mgr. kemur: fjórir tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands og fjórir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 30. mars 2015.
Illugi Gunnarsson.
Ásta Magnúsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.