Prentað þann 14. apríl 2025
364/2015
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.
1. gr.
Við upptalningu á skaðvöldum í viðauka I með reglugerðinni bætist eftirfarandi:
Phytophthora ramorum | lyngrós, lerki, eik o.fl. |
2. gr.
Við viðauka III bætist eftirfarandi: trjáættkvísl sem bannað er að flytja til landsins (fræ eru undanskilin).
12) | Þinur (Abies spp.) til áframhaldandi ræktunar. |
3. gr.
Við viðauka IV bætist nýr liður í plöntur til áframhaldandi ræktunar eða fjölgunar:
f) | Lyngrósir (Rhododendron spp.) að undanskilinni Rhododendron simsii, má eingöngu flytja inn ef plöntur koma frá vaxtarstað þar sem Phytophthora ramorum finnst ekki. |
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og öðlast gildi 1. júní 2015.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. mars 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Baldur Arnar Sigmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.