REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um gjöld
fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl., nr. 152/1998.
1. gr.
Við 6. gr. bætist nýr töluliður, er verður 9. töluliður svohljóðandi:
9. Leyfi til farþegaflutninga með skipum .................................................... kr. 4.000
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 28. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 35/1993 með síðari breytingum, sbr. 1. gr. laga nr. 74/1988, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytinu, 27. júlí 1998.
Halldór Blöndal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.