REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 88/1991 um Starfsmannaráð Póst- og símamálastofnunnar.
1. gr.
e) liður 1. gr. orðist svo:
Fulltrúi tilnefndur af félögum innan stofnunarinnar í Alþýðusambandi Íslands með málfrelsi og tillögurétt, svo og tillögu- og atkvæðisrétt, þegar fjallað er um stöður innan ASÍ.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 10. gr. laga nr. 36/1977, um stjórn og starfrækslu póst og símamála, sbr. lög nr. 34/1987, til að öðlast gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 16. apríl 1991.
Steingrímur J. Sigfússon.
Halldór S. Kristjánsson.