Prentað þann 15. apríl 2025
345/2013
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.
1. gr.
Á eftir f-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður (g.) svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 135/2012 frá 16. febrúar 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs í því skyni að bæta tilteknum, óflokkuðum úrgangi við í III. viðauka B við hana, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2013 frá 1. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 14. mars 2013 - 2013/EES/16/56, bls. 275-277.
2. gr. Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 135/2012 frá 16. febrúar 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs í því skyni að bæta tilteknum, óflokkuðum úrgangi við í III. viðauka B við hana.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 29. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 4. apríl 2013.
F. h. r.
Stefán Thors.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.