REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, nr. 121/1990 með síðari breytingum.
1. gr.
12. tl. 7. gr. orðist svo:
Á félagssvæði Vörubílstjórafélagsins Vals, sem er Akureyri, Eyjarfjarðarsveit, Glæsibæjar-, Öxnadals-, Skriðu- og Arnarneshreppur, allir í Eyjarfjarðarsýslu. Hámarkstala er 20 vörubifreiðar.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 25. júlí 1994.
Halldór Blöndal.
Helgi Jóhannesson.