Prentað þann 8. apríl 2025
324/2021
Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð um stuðningslán, nr. 534/2020.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Lánastofnun getur þó framlengt lánstíma og frestað endurgreiðslum um allt að 12 mánuði.
- Í stað orðanna "fjögur" og "tveimur" í 2. mgr. kemur: fimm; og: þremur.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Breytingar á skilmálum rafræns skuldabréfs skv. 14. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, vegna framlengingar lánstíma og frestun endurgreiðslna geta verið rafrænar og fer um þær eftir ákvæðum 14. og 15. gr. laganna.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 24. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. mars 2021.
Bjarni Benediktsson.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.