Prentað þann 5. apríl 2025
272/2013
Reglugerð um viðmiðunarreglur fyrir áhættumiðað dýraheilbrigðiseftirlit sem kveðið er á um í tilskipun ráðsins 2006/88/EB.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2010 frá 11. nóvember 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2008/896/EB frá 20. nóvember 2008 um viðmiðunarreglur fyrir áhættumiðað dýraheilbrigðiseftirlit sem kveðið er á um í tilskipun ráðsins 2006/88/EB.
2. gr.
Ofangreind ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008 um fiskeldi, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
4. gr.
Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008 um fiskeldi, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. mars 2013.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.