Prentað þann 7. apríl 2025
266/2021
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1715 um reglur um starfsemi upplýsingastjórnunarkerfis vegna opinbers eftirlits og kerfisþátta þess (IMSOC reglugerðin).
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirfarandi ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1715 frá 30. september 2019 um reglur um starfsemi upplýsingastjórnunarkerfis fyrir opinbert eftirlit og kerfisíhluti þess (IMSOC-reglugerðin). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 282/2019, frá 31. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87, frá 17. desember 2020, bls. 16.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/547 frá 29. mars 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1715 að því er varðar málsmeðferðarreglur vegna uppsetningar og notkunar á upplýsingakerfinu um dýrasjúkdóma (ADIS) og EUROPHYT-kerfinu, útgáfu rafrænna dýraheilbrigðisvottorða, opinberra vottorða, dýraheilbrigðisvottorða/opinberra vottorða og viðskiptaskjala, notkun rafrænna undirskrifta og virkni Traces-kerfisins og niðurfellingu á ákvörðun 97/152/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 141.
Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 282/2019 og nr. 235/2021.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.