Prentað þann 13. apríl 2025
262/2023
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og o
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 10. tl., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 frá 19. desember 2022 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/2504 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 7/2023.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Margrét Björk Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.