Prentað þann 12. apríl 2025
254/2012
Reglugerð um tilkynningu dýrasjúkdóma innan Evrópska efnahagssvæðisins.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla í I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi EBE-tilskipun gildi hér á landi:
Tilskipun ráðsins 82/894/EBE frá 21. desember 1982 um tilkynningu dýrasjúkdóma innan bandalagsins.
2. gr.
Tilskipun ráðsins nr. 82/894/EBE er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og VIII. kafla laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. mars 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.