Prentað þann 13. apríl 2025
252/2009
Reglugerð um breytingu á reglugerðum er varða mælifræðilegt eftirlit.
Efnisyfirlit
- I. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1060/2008, um mælifræðilegt eftirlit með mælikerfum fyrir eldsneytisskammtara, tankbifreiðar og mjólk.
- II. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1061/2008, um mælifræðilegt eftirlit með raforkumælum.
- III. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1062/2008, um mælifræðilegt eftirlit með vatnsmælum.
- IV. KAFLI Lagastoð og gildistaka.
I. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1060/2008, um mælifræðilegt eftirlit með mælikerfum fyrir eldsneytisskammtara, tankbifreiðar og mjólk.
1. gr.
4. tl. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
- EBE-mælikerfi eru mælikerfi sem hafa gilda EBE-gerðarviðurkenningu, bera rétt merki þar um og eru innsigluð sbr. reglugerð nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. fellur brott.
- 2. mgr. orðast svo:
EBE-mælikerfi og MID-mælikerfi, sem uppfylla kröfur 3. gr., teljast hafa löggildingu til fyrstu notkunar sé samræmismati að fullu lokið og uppsetning uppfylli kröfur 7. gr.
3. gr.
Í stað orðsins "MID-mælikerfa" í 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: mælikerfa.
4. gr.
1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Ný mælikerfi skal löggilda í fyrsta sinn ekki síðar en þegar tvö ár eru liðin frá uppsetningu þeirra.
5. gr.
2. málsl. 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
6. gr.
Á eftir orðinu "innheimtir" í 22. gr. reglugerðarinnar kemur: umsóknargjald,
II. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1061/2008, um mælifræðilegt eftirlit með raforkumælum.
7. gr.
8. tl. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
- EBE-mælar eru raforkumælar sem hafa gilda EBE-gerðarviðurkenningu, bera rétt merki þar um og eru innsiglaðir sbr. rg. nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "EBE-mælar og mælar" í 1. mgr. kemur: Mælar.
- 2. mgr. orðast svo:
EBE-mælar með EBE-sannprófun, réttar merkingar og innsigli og MID-mælar, sem samræmismati er lokið fyrir, eru rétt merktir og innsiglaðir teljast hafa löggildingu til fyrstu notkunar. - Framan við orðið "MID-mælar" í 3. mgr. bætist: EBE-mælar og
9. gr.
Orðin "EBE-mælar og" í 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar falla brott.
10. gr.
Á eftir orðinu "innheimtir" í 27. gr. reglugerðarinnar kemur: umsóknargjald,
III. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 1062/2008, um mælifræðilegt eftirlit með vatnsmælum.
11. gr.
5. tl. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
- EBE-mælar eru vatnsmælar sem hafa gilda EBE-gerðarviðurkenningu, bera rétt merki þar um og eru innsiglaðir sbr. reglugerð nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. fellur brott.
- 2. mgr. orðast svo:
EBE-mælar með EBE-sannprófun, réttar merkingar og innsigli og MID-mælar, sem samræmismati er lokið fyrir, eru rétt merktir og innsiglaðir teljast hafa löggildingu til fyrstu notkunar. - Framan við orðið "MID-mælar" í 3. mgr. bætist: EBE-mælar og
13. gr.
2. málsl. 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
14. gr.
Á eftir orðinu "innheimtir" í 23. gr. reglugerðarinnar kemur: umsóknargjald,
IV. KAFLI Lagastoð og gildistaka.
15. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og öðlast þegar gildi. Samtímis falla úr gildi reglugerðir nr. 140/1994 um rennslismæla fyrir vökva aðra en vatn, nr. 141/1994 um viðbótarbúnað með rennslismælum fyrir vökva aðra en vatn og nr. 142/1994 um mælikerfi fyrir vökva aðra en vatn.
Viðskiptaráðuneytinu, 19. febrúar 2009.
Gylfi Magnússon.
Jónína S. Lárusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.