REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um innflutning á geislatækjum, er framleiða
útfjólubláa geisla nr. 449/1982.
1.gr.
2. mgr. 3. gr. orðist svo:
Skoðunargjald að upphæð kr. 2 500,00 skal fylgja með umsókn.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. gr. laga nr. 58/1982, um breytingu á lögum nr. 95/1962, um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum frá geislavirkum efnum eða geislatækjum, öðlast gildi þegar við birtingu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 12. mars 1984.
Matthías Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson.