Prentað þann 7. apríl 2025
235/2023
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/724 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 að því er varðar samskipti aðildarríkja við framkvæmdastjórnina með tilliti til aðila sem eru tilnefndir til að hafa eftirlit með þroskunarferli brenndra drykkja og lögbær yfirvöld sem bera ábyrgð á að farið sé að ákvæðum þeirrar reglugerðar.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.
2. gr.
Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/724 frá 3. mars 2021 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 að því er varðar samskipti aðildarríkja við framkvæmdastjórnina með tilliti til aðila sem eru tilnefndir til að hafa eftirlit með þroskunarferli brenndra drykkja og lögbær yfirvöld sem bera ábyrgð á að farið sé að ákvæðum þeirrar reglugerðar. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 249.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, með síðari breytingum, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Margrét Björk Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.