Prentað þann 7. apríl 2025
232/2010
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1004/2008 (að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7).
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2009, frá 5. febrúar 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1004/2008 frá 15. október 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 39, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1004/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 6/2010, 5. febrúar 2010, bls. 251.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 16/2009, 19. mars 2009, bls. 29.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 2. mars 2010.
Gylfi Magnússon.
Jónína S. Lárusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.