Prentað þann 9. apríl 2025
Breytingareglugerð
225/2014
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 664/2012, um Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn o.fl.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:
Að auki skal fulltrúi sveitarfélaga á svæðinu eiga sæti í fagráðinu. - 1. málsl. 2. mgr. orðast svo:
Fagráðið skal vera forstöðumanni náttúrurannsóknastöðvarinnar til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknastefnu, upplýsingagjöf til heimamanna og almenings og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rannsóknir á vatnasviði Mývatns og Laxár í samræmi við lög.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 7. og 8. gr. laga nr. 97/2004, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og öðlast gildi við birtingu.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 19. febrúar 2014.
F. h. r.
Stefán Thors.
Jón Geir Pétursson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.