REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 477/1995, um áfengisgjald,
með áorðnum breytingum.
1. gr.
Við 14. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður er verði 7. töluliður, svohljóðandi:
7. Áfengisblöndur sem notaðar eru til framleiðslu á áfengum drykkjum, óhæfar til neyslu, enda séu þær fluttar til landsins af framleiðanda sem hefur leyfi til að selja áfengi skv. 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga nr. 82/1969, og framleiða vöru sem gjaldskyld er samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 11. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi, til að öðlast gildi þegar í stað.
Fjármálaráðuneytinu, 11. október 1996.
F. h. r.
Indriði H. Þorláksson.
Guðrún Ásta Sigurðardóttir.