Prentað þann 8. apríl 2025
219/2012
Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 1170 10. desember 2008, um löggæsluskilríki Landhelgisgæslu Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir setningunni: "Efst skal vera áletrunin "Landhelgisgæslan" og síðan með smækkuðu letri "Icelandic Coast Guard"" í 3. mgr. 2. gr., kemur ný setning: Þá kemur áletrun með rauðum stöfum: "Handhafi lögregluvalds", og þar fyrir neðan til hægri með svörtu smáu letri: "skv. lögum um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006."
- Í stað orðsins "gráa" í lokamálslið 4. mgr. 2. gr. kemur: bláa.
- Í stað orðsins "3 mm" í lokamálslið 4. mgr. 2. gr. kemur: 1 sm.
2. gr.
b. liður 2. mgr. 3. gr. fellur brott. c. liður 2. mgr. 3. gr. verður b. liður.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 21. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52 14. júní 2006 með síðari breytingum öðlast gildi þegar í stað.
Innanríkisráðuneytinu, 10. febrúar 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.