Prentað þann 13. apríl 2025
210/2017
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2284 um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 76/621/EBE að því er varðar fastsetningu á hámarksgildi fyrir erúkasýru í olíum og fitu og reglugerð ráðsins (EB) nr. 320/2006 um tímabundna áætlun um endurskipulagningu sykuriðnaðar.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 231/2016, frá 2. desember 2016, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2284 frá 25. nóvember 2015 um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 76/621/EBE að því er varðar fastsetningu á hámarksgildi fyrir erúkasýru í olíum og fitu og reglugerð ráðsins (EB) nr. 320/2006 um tímabundna áætlun um endurskipulagningu sykuriðnaðar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 16. febrúar 2017, bls. 157.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. febrúar 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.