Prentað þann 5. apríl 2025
187/2016
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerða framkvæmdastjórnarinnar vegna aðflutnings matvæla til Evrópusambandsins sem eru ætluð á EXPO Milano 2015.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/329 um undanþágu frá ákvæðum Sambandsins varðandi heilbrigði dýra og manna að því er varðar aðflutning matvæla úr dýraríkinu til Evrópusambandsins sem eru ætluð á EXPO Milano 2015 í Mílanó (Ítalíu).
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/448 um sértækar dýraheilbrigðisreglur vegna aðflutnings tiltekinna matvæla úr dýraríkinu til Sambandsins frá Japan sem eru ætluð á EXPO Milano 2015.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, sem taldar eru upp í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
4. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli og lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
5. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. febrúar 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.