Prentað þann 14. apríl 2025
181/2012
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 115/2010, um skilyrði fyrir notkun á virkjuðu súráli til að fjarlægja flúoríð úr ölkelduvatni og uppsprettuvatni.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla í I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2011, frá 2. júlí 2011, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 115/2010, um skilyrði fyrir notkun á virkjuðu súráli til að fjarlægja flúoríð úr ölkelduvatni og uppsprettuvatni.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 115/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 7. október 2011, bls. 240.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.