Prentað þann 8. apríl 2025
174/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 188/2020, um veiðar á humri.
1. gr.
Ákvæði til bráðabrigða orðist svo:
Allar veiðar með humarvörpu eru bannaðar, frá og með 16. mars 2021 til og með 15. mars 2022, á eftirfarandi svæðum:
- Lónsdýpi.
- Jökuldýpi.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. febrúar 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.