1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 2. gr. reglugerðarinnar:
1.13 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/285 frá 18. febrúar 2019 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2011/486 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 1.13. | |
1.14 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/153 frá 3. febrúar 2022 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2011/486 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 1.14. | |
2.13 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/279 frá 18. febrúar 2019 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 2.13. | |
2.14 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/148 frá 3. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 2.14. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 16. desember 2022.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)