Matvælaráðuneyti

1670/2024

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Svo hægt sé að tryggja nægilegt framboð á tilbúnum áburði fyrir árið 2025 skal, þrátt fyrir ákvæði 3. gr. reglugerðar þessarar, vera heimilt til ársloka 2025 að flytja inn og nota hérlendis ólífrænan áburð, sem inniheldur fosfór og inniheldur kadmíum að hámarki 136 mg Cd/kg P eða 60 mg Cd/kg P2O5. Leggja skal fram staðfestingu á kadmíuminnihaldi skv. ákvæðum 3. gr. og önnur skilyrði reglu­gerðar­innar standa óbreytt.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. desember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Kolbeinn Árnason.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica