Prentað þann 22. feb. 2025
1667/2024
Reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2025.
1. gr.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar framlagi til einstakra sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2025, sbr. XXV. ákvæði til bráðabirgða í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Framlög til einstakra sveitarfélaga skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim.
2. gr.
Við úthlutun framlagsins til sveitarfélaga árið 2025, skal hlutfallsskipta fjármagni til ráðstöfunar á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi, og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands:
- Fjöldi barna 1. janúar 2024.
- Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2020/2021, 2021/2022 og 2022/2023 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2021, 2022 og 2023.
- Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2023.
- Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2024.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli XXV. ákvæðis til bráðabirgða og 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, tekur gildi 1. janúar 2025. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 144/2024 um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2024.
Innviðaráðuneytinu, 20. desember 2024.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.