Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Matvælaráðuneyti

1623/2024

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 430/2021, um almennan stuðning við landbúnað.

1. gr.

1. ml. 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Jarðræktarstyrkjum skal varið til nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar, ræktunar annarra fóðurjurta sem og annarra niturbindandi nytjaplantna.

 

2. gr.

2. ml. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Beit búpenings telst vera uppskera og nýting kornhálms, niturbindandi plantna og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs telst styrkhæf.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búnaðarlögum, nr. 70/1998, og búvörulögum, nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 18. desember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica