Reglugerð
um húsaleigubætur.
I. kafli
Fjárhæð og útreikningur húsaleigubóta.
1. gr.
Grunnfjárhæðir húsaleigubóta skal ákvarða þannig, að grunnstofn til útreiknings húsaleigubóta á mánuði skal vera 7.000 kr. fyrir hverja íbúð. Að auki bætast við 4.500 kr. fyrir fyrsta barn, 3.500 kr. fyrir annað og 3.000 kr. fyrir þriðja. Til viðbótar koma 12% þess hluta leigufjárhæðar er liggur á milli 20.000 - 45.000 kr.
Bætur skerðast óháð fjölskyldustærð í hverjum mánuði um 2% af árstekjum umfram 1,5 millj. kr.
Grunnfjárhæðir geta þó aldrei orðið hærri en sem nemur 50% af leigufjárhæð, að hámarki 21.000 kr. á mánuði.
Félagsmálaráðherra tekur, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir 1. október ár hvert ákvörðun um grunnfjárhæðir bóta fyrir næstkomandi ár, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga um húsaleigubætur.
II. kafli
Umsókn um húsaleigubætur.
2. gr.
Umsókn um húsaleigubætur skal skilað til viðkomandi sveitarfélags á sérstöku þar til gerðu eyðublaði er félagsmálaráðuneytið hefur útbúið í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Eyðublöðin skulu liggja frammi almenningi til afnota, á skrifstofum sveitarfélaga, hjá samtökum leigusala og leigjenda, Húsnæðisstofnun ríkisins og annars staðar þar sem ástæða þykir til.
3. gr.
Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka.
Umsókn um húsaleigubætur skal hafa borist sveitarfélagi eigi síðar en 15 dögum fyrir fyrsta dag útgreiðslumánaðar.
Sé umsókn ófullnægjandi eða henni fylgja ekki nauðsynleg gögn koma bætur ekki til greiðslu í næsta mánuði á eftir, en réttur til bóta miðast hins vegar við umsóknartíma, berist fullnægjandi gögn síðar. Skal þá sveitarfélag gera umsækjanda grein fyrir því sem ábótavant er og honum gefinn kostur á að bæta úr því innan tveggja mánaða. Sinni umsækjandi ekki þeim tilmælum telst umsókn hans fallin niður, sbr. 12. gr. laga um húsaleigubætur.
Ákvörðun um rétt til húsaleigubóta og um bótafjárhæðir skal endurskoða á grundvelli breyttra aðstæðna bótaþega.
Húsaleigubætur greiðast ekki mánaðarlega sé útreiknuð fjárhæð bóta undir 500 kr. Greiðsla þeirra fer fram í desember ár hvert.
4. gr.
Umsókn um húsaleigubætur skulu fylgja eftirfarandi gögn, sbr. 11. gr. laga um húsaleigubætur:
1. Frumrit þinglýsts húsaleigusamnings sem gerður er á staðfest eyðublað félagsmálaráðuneytis eða Húsnæðisstofnunar ríkisins og undirritaður af báðum aðilum.
2. Ljósrit af skattframtölum þeirra sem lögheimili eiga í íbúðinni fyrir síðasta ár, staðfest af skattstjóra.
3. Launaseðlar þeirra sömu og getið er í 2. tölul. fyrir þrjá síðustu mánuði og/eða upplýsingar um reiknað endurgjald vegna sjálfstæðrar starfsemi.
4. Staðfesting skóla um nám barna umsækjanda sem eru 20 ára eða eldri og stunda skólanám í sex mánuði eða lengur á árinu.
5. Íbúavottorð Hagstofu Íslands fyrir viðkomandi íbúð, hafi viðkomandi sveitarfélag ekki beinan aðgang að þjóðskrá.
Hafi sveitarfélag beinan aðgang að upplýsingum ríkisskattstjóra varðandi tekjur og eignir umsækjanda, þ.m.t. aðgang að staðgreiðslu, getur það ákveðið að umsækjandi þurfi ekki að leggja fram afrit af skattskýrslu né launaseðlum, sbr. 2. - 3. tölul. 1. mgr., svo framarlega sem sveitarfélaginu er veitt fullt umboð til þess að afla þeirra upplýsinga hjá skattyfirvöldum.
III. kafli
Skuldajöfnuður og viðmið um eignir.
5. gr.
Um skuldajöfnuð fer skv. 18. gr. laga um húsaleigubætur. Að öðru leyti fer um skuldajöfnuð skv. almennum reglum kröfuréttarins, s.s. um heimild til að skuldajafna húsaleigubótum sem koma eiga til greiðslu á móti ofgreiddum bótum til sama bótaþega.
6. gr.
Viðmið um eignir sem lagt skal til grundvallar við ákvörðun um fjárhæðir húsaleigubóta árið 1998, samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, eru þrjár milljónir króna. Fjárhæð þessi er miðuð við verðlag í desember 1997 og breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluvísitölu (181,4 stig í desember 1997).
Félagsmálaráðherra lætur reikna út og birtir nýjar fjárhæðir samkvæmt ákvæði þessu.
IV. kafli
Greiðslur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
7. gr.
Greiðslur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga skv. 3. gr. laga um húsaleigubætur skulu fara fram ársfjórðungslega. Greiðslurnar skulu inntar af hendi eigi síðar en 20. apríl, 20. júlí, 20. október og 20. janúar, vegna október- til desembermánaðar, ár hvert að því tilskyldu að fullnægjandi skilagrein hafi borist sjóðnum 15 dögum fyrir hvern tilgreindan greiðsludag.
Berist skilagrein síðar en tilgreint er í 1. mgr. frestast greiðsla fram á næsta tilgreindan greiðsludag. Greiðslur falla niður hafi skilagrein ekki borist innan 6 mánaða frá greiðsludegi viðkomandi tímabils.
8. gr.
Sveitarfélög skulu skila upplýsingum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á þar til gerðum eyðublöðum Jöfnunarsjóðs, ásamt lista þar sem fram koma nöfn, lögheimili, aðsetur og kennitölur þeirra sem hafa fengið greiddar húsaleigubætur, ásamt upplýsingum um fjárhæðir bóta.
Sveitarfélög skulu jafnframt skila fyrir 1. mars ár hvert áætlun til Jöfnunarsjóðs á þar til gerðum eyðublöðum, um heildargreiðslu húsaleigubóta á árinu, miðað við grunnfjárhæð bóta, sbr. 1. gr.
9. gr.
Greiðslur til sveitarfélaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga miðast við grunnfjárhæðir bóta, sbr. 1. gr.
Sveitarfélög skulu leggja út fé til greiðslu húsaleigubóta en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga reiknar þeim ársfjórðungslega 50% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu, sbr. þó 3. mgr.
Við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 7. gr., skal sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu, sbr. 2. mgr., til þess að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga fara fram úr áætlunum þeirra sbr. 2. mgr. 8. gr. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga skal fara fram í janúar ár hvert á grundvelli framlags ríkisins skv. 3. gr. laga um húsaleigubætur.
V. kafli
Málsskot, gildistaka o.fl.
10. gr.
Leigjandi (umsækjandi um húsaleigubætur) getur skotið ákvörðunum sveitarstjórnar um framkvæmd laga um húsaleigubætur og reglugerðar þessarar til úrskurðarnefndar félagsþjónustu, sbr. 16. gr. laga um húsaleigubætur.
11. gr.
Félagsmálaráherra skipar til fjögurra ára í senn fimm manna samráðsnefnd sem skal fylgjast með framkvæmd laga um húsaleigubætur og reglugerðar þessarar. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir tvo fulltrúa í nefndina og félagsmálaráðherra þrjá, þar af formann nefndarinnar.
12. gr.
Reglugerð þessi, sbr. einkum ákvæði um grunnfjárhæðir í 1. gr. og ákvæði 9. gr., skal endurskoðuð fyrir 1. júlí 1998 í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og síðan endurskoðuð reglulega með hliðsjón af framkvæmd.
13. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 21. gr., sbr. 5., 9. og 13. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 556/1994 um húsaleigubætur.
Félagsmálaráðuneytinu, 15. janúar 1998.
Páll Pétursson.
Elín Blöndal.