Prentað þann 14. apríl 2025
154/2014
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 602/2008 um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.
1. gr.
c-liður 4. gr. orðist svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 428/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 204/2013 frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 131.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 428/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr. með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 204/2013 frá 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 131.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.